6. júní 2025Möntrur fyrir einhleypaSetningar sem einhleypt fólk getur endurtekið til að laða að lífið sem þau óska sér. Æfingin hefur veitt fólki aukinn árangur í ástarlífinu.
13. júní 2025
Hugmyndir að hádegismat
Róandi upptalning á veitingastöðum, tilboðum og réttum sem
þú gætir fengið þér í hádegismat.
25. júní 2025Tropical sunrise beach Huglæg myndframsetning sem tekur þig í ferðalag á hina
fullkomnu sólarströnd.
Ný hugleiðsla væntanleg
í hverri viku
Um verkefnið
Ímyndaðu þér er sería útvarpsþátta þar sem leikhópurinn Hlæja og gráta tekst á við hugleiðsluformið. Til að kanna mörk hugleiðsluformsins stefnir hópurinn á að hver hugleiðsla verði einstök upplifun með óhefðbundna áherslu. Hugleiðsla getur verið hjálplegt tól til að beisla streymi óstýrilátra hugsana. Aftur á móti getur hugmyndin um að setjast niður og gera ekkert nema hugleiða hljómað alveg drepleiðinlega. Með verkefninu hyggst leikhópurinn gera hugleiðslu spennandi fyrir meðalmanninn. Ef þér leiðist hugleiðsla verða þættirnir í það minnsta skemmtilegir.